Enski boltinn

Fékk hrós frá Klopp: Vin­gjarn­legasti maður sem ég hef hitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Abigail Rudkin sést hér fá góðar móttökur frá Jürgen Klopp.
Abigail Rudkin sést hér fá góðar móttökur frá Jürgen Klopp. @rudkin_abigail

Ung listakona málaði mynd þar sem viðfangsefnið var Jürgen Klopp og magnaður tími hans sem knattspyrnustjóri Liverpool. Hún fékk síðan að hitta þýska stjórann og sýna honum myndina.

Abigail Rudkin birti myndir og myndband af fundi sínum með Klopp og hún ber honum mjög góða söguna.

Klopp sést taka vel á móti henni og hrósa henni fyrir myndina sem er svo sannarlega glæsileg. Hann gerði myndina síðan enn verðmeiri fyrir hana með því á árita hana.

„Átti minn besta dag á ævi minni. Eftir að hafa málað Jürgen í öll þessi ár þá fékk ég loksins tækifæri til að sýna honum verk eftir mig. Hann sagði: Við verðum að taka upp myndband. Tökum upp myndband,“ skrifaði Abigail á samfélagsmiðlinum X.

„Ég var í algjöru áfalli. Hann er vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt. Vonandi eigum við eftir að hittast aftur,“ skrifaði Abigail eins og sjá má hér fyrir neðan.

Klopp er að kveðja Liverpool eftir þetta tímabil en liðið á aðeins eftir að spila þrjá leiki undir hans stjórn. Sá fyrsti af þeim verður á móti Tottenham á Anfield um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×